Blikarnir mættust ekki á vellinum

Kristinn Jónsson
Kristinn Jónsson mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Ekkert varð úr því að vinirnir úr Breiðabliki, Kristinn Jónsson og Guðmundur Kristjánsson mættust í norska fótboltanum í kvöld. Lið Kristins, Sarpsborg hafði betur gegn Start liði Guðmundar, 1:0. 

Jonas Lindberg skoraði eina mark leiksins fyrir heimaliðið á 78. mínútu. Kristinn sat á varamannabekknum hjá Sarpsborg og Guðmundur var ekki í leikmannahópi Start. 

Sarpsborg er í fjórða sæti deildarinnar með 31 stig en Start er í bullandi vandræðum í botnsætinum og er án sigurs eftir átján leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert