Guðlaugur Victor Pálsson skoraði fyrir Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Esbjerg heimsótti Viborg og þurfti að sætta sig við tap 2:1. Victor skoraði á 87. mínútu og minnkaði þá muninn í 2:1.
Victor kom inn á sem varamaður á 86. mínútu og var því einungis mínútu að setja mark sitt á leikinn.
Esbjerg hefur byrjað deildina mjög illa og hefur tapað fyrstu þremur leikjunum með markatölunni 1:10.