Björn Daníel á leið til Danmerkur

Björn Daníel Sverrisson er á leið til AGF
Björn Daníel Sverrisson er á leið til AGF

Björn Daníel Sverrisson, leikmaður Viking í Noregi, er á leið til danska úrvalsdeildarfélagsins AGF, en þetta kemur fram í norska blaðinu Aftenposten í dag.

Björn, sem er fæddur árið 1990, hefur verið lykilmaður í liði Viking síðustu tvö ár en hann kom til liðsins frá FH árið 2014.

Hann er nú á leið til danska úrvalsdeildarfélagsins AGF en hann mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið á allra næstu dögum.

Björn átti aðeins hálft ár eftir af samning sínum við Viking en norska liðið fékk rúmlega 500 þúsund norskar krónur fyrir hann eða sjö milljónir íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert