„Ertu með númerið hjá Balotelli?“

Mario Balotelli fagnar marki í leik með Liverpool.
Mario Balotelli fagnar marki í leik með Liverpool. AFP

Forseti franska kanttspyrnufélagsins Nice, Jean-Pierre Rivére, vill krækja í ítalska sóknarmanninn Mario Balotelli.

Balotelli, sem er 26 ára gamall, er leikmaður Liverpool en þangað kom hann frá AC Milan árið 2014. Honum hefur verið tjáð að hann megi yfirgefa enska liðið en hann hefur verið orðaður við Nice og Palermo upp á síðkastið.

Nice hefur farið vel af stað í frönsku úrvalsdeildinni en liðið er með sjö stig af níu mögulegum eftir þrjár umferðir. Rivére viðurkenndi eftir 1:1-jafntefli Nice gegn Lille um helgina að hann væri vongóður um að klófesta Balotelli:

„Ertu með númerið hjá Balotelli? Hringdu í hann og segðu honum að okkur vanti sóknarmann í Nice.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert