Sannur íþróttaandi - myndskeið

Leikmenn aðalliðs Barcelona.
Leikmenn aðalliðs Barcelona. AFP

Leikmenn unglingaliðs Barcelona á Spáni sýndu afar íþróttamannslega hegðun er liðið vann World Challenge-mótið í Japan um helgina. Myndbandið í fréttinni hefur farið eins og eldur í sinu á netinu um allan heim.

Börsungar eru með eitt allra öflugasta unglingastarf í knattspyrnunni í heiminum og kom það fáum á óvart að leikmenn unglingaliðsins unnu World Challenge-mótið. Barcelona vann japanska liðið Omya 1:0 í úrslitum en spænsku drengirnir sýndu magnaðan íþróttaanda í leikslok.

Leikmenn Omya hágrétu eftir að hafa tapað leiknum en Börsungar sýndu þeim samúð með því að hugga þá. Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert