Hannes í liði mánaðarins

Hannes Þór Halldórsson í leik með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu …
Hannes Þór Halldórsson í leik með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu gegn Englandi í 16 liða úrslitum EM 2016. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, sem leikur með Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, var valinn í úrvalslið mánaðarins hjá danska blaðinu Tipsbladet. 

Hannes Þór hélt marki Randers hreinu í öllum þremur deildarleikjum liðsins í ágúst, en liðið, sem leikur undir stjórn Ólafs Helga Kristjánssonar, bar sigur úr býtum í öllum þessum leikjum með einu marki gegn engu. 

Hannes Þór er á sínum stað í leikmannahópi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Úkraínu mánudaginn 5. september í Kíev í fyrstu umferð í undankeppni HM sem fram fer í Rússlandi árið 2018.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert