Schweinsteiger felldi tár (myndskeið)

Bastian Schweinsteiger.
Bastian Schweinsteiger. AFP

Bastian Schweinsteiger gat ekki haldið aftur af tárum sínum þegar hann var hylltur eftir að hafa spilað sinn síðasta leik með þýska landsliðinu í knattspyrnu.

Schweinsteiger lék kveðjuleikinn gegn Finnum í kvöld en þeir verða fyrstu andstæðingar Íslendinga á heimavelli í undankeppni HM í október. Þjóðverjar höfðu betur, 2:0, með mörkum frá Max Meyer og sjálfsmarki.

Schweinsteiger lék fyrstu 68 mínúturnar en þetta var hans 121. og síðasti leikur með þýska landsliðinu. Hann var hylltur vel og lengi og tók á móti gjöfum frá þýska knattspyrnusambandinu eftir leikinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert