Ari opnaði markareikninginn

Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason. Ljósmynd/Kristján Bernburg

Landsliðsbakvörðurinn Ari Freyr Skúlason skoraði í kvöld sitt fyrsta mark fyrir Lokeren í belgísku A-deildinni í knattspyrnu.

Ari Freyr kom sínum mönnum í 1:0 á útivelli gegn Beveren en heimamönnum tókst að jafna metin sex mínútum fyrir leikslok og lokatölur urðu 1:1.

Ari Freyr lék allan tímann fyrir Lokeren og það sama gerði Sverrir Ingi Ingason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert