Eiður Smári glímir við meiðsli

Eiður Smári Guðjohnsen er meiddur.
Eiður Smári Guðjohnsen er meiddur. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Sóknarmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen glímir við meiðsli og mun af þeim sökum líklega ekkert leika með Pune City í indversku ofurdeildinni sem hefst um næstu helgi.

Samkvæmt erlendum fjölmiðlum meiddist Eiður á undirbúningstímabilinu en hann hefur ekki æft með liðinu síðustu daga og lék ekki æfingaleik á dögunum.

Eiður mun halda aftur til Evrópu þar sem nánar verður hugað að meiðslunum. Pune City leikur fyrsta leik sinn 3. október þegar það tekur á móti Mumbai City en forráðamenn liðsins vonast til að Eiður nái einhverjum leikjum.

Tímabilið í indversku ofurdeildinni er stutt en keppni hefst eins og áður segir um næstu helgi og úrslitaleikur um titilinn verður leikinn nokkrum dögum fyrir jól.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert