Norska úrvalsdeildarliðið Start hafði fyrir leikinn gegn Haugasundi í dag ekki unnið leik í 448 daga en það kom að því að liðið fagnaði sigri.
Start hrósaði 1:0 sigri þar sem sigurmarkið leit dagsins ljós sjö mínútum fyrir leikslok. Guðmundur Kristjánsson leikur með Start og hann lék allan síðari hálfleikinn.
Þrátt fyrir sigurinn er Start langneðst, en liðið hefur aðeins 12 stig eftir 25 leiki og fátt getur komið í veg fyrir að liðið falli úr norsku úrvalsdeildinni.