Sama sagan hjá Lilleström

Gary Martin og samherjar hans í Lilleström eru í fallsæti.
Gary Martin og samherjar hans í Lilleström eru í fallsæti. Ljósmynd/Lilleström

Ekki tókst Arne Erlandsen, eftirmanni Rúnars Kristinssonar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström, að koma liðinu á sigurbraut.

Lilleström tapaði á heimavelli fyrir Sogndal, 2:1, og er áfram í fallsæti, en liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar þegar fimm umferðum er ólokið. Hvorki hefur gengið ré rekið hjá Lilleström og Rúnar fékk að finna fyrir því, en hann var rekinn úr starfi á dögunum.

Gary Martin var í byrjunarliði Lilleström en var skipt af velli á 70. mínútu. Lilleström hefur nú leikið átta leiki í röð án sigurs í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert