Enn skorar Elías Már

Elías Már Ómarsson í leik með U21 ára landsliðinu.
Elías Már Ómarsson í leik með U21 ára landsliðinu. Ljósmynd/KSÍ

Elías Már Ómarsson heldur áfram að raða inn mörkunum fyrir Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Elías Már skoraði síðara mark Gautaborgar í 2:0 sigri gegn Östersund í kvöld og hann hefur þar með skorað 4 mörk í þeim átta leikjum sem hann hefur spilað með liðinu. Elías var lánaður til liðsins frá norska liðinu Vålerenga í sumar.

Elías var í byrjunarliðinu en fór af velli á 83. mínútu en Hjálmar Jónsson sat á bekknum allan tímann hjá Gautaborgarliðinu.

Íslendingaliðið Hammarby vann 2:0 útisigur á móti Falkenbergs þar sem Ögmundur Kristinsson varði mark Hammarby og þeir Arnór Smárason og Birkir Már Sævarsson léku allan tímann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert