Vilja gera nýjan samning við Suárez

Luis Suarez.
Luis Suarez. AFP

Spænska meistaraliðið vill gera nýjan samning við úrúgvæska framherjann Luis Suárez. Börsungar vilja fá þennan mikla markaskorara til að skrifa undir samning sem gildir til ársins 2020.

Suárez kemur til með að hækka töluvert í launum ákveði hann að halda kyrru fyrir hjá Katalóníuliðinu og mun hann verða jafn launahár og Brasilíumaðurinn Neymar en Lionel Messi verður sem fyrr sá hæst launaði hjá félaginu.

Suárez fær sem jafngildir 25 milljónum króna í vikulaun en kemur til með að fá 40 milljónir króna á viku kjósi hann að skrifa undir nýjan samning. Vikulaunin hjá Messi eru hins vegar um 53 milljónir króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert