Aalesund vann sinn sjötta leik í röð

Daníel Leó Grétarsson, til hægri, ásamt Aroni Elís Þrándarsyni.
Daníel Leó Grétarsson, til hægri, ásamt Aroni Elís Þrándarsyni. Ljósmynd/aafk.no

Íslendingaliðið Aalesund vann sinn sjötta leik í röð í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Viking á útivelli í kvöld, 3:2.

Þeir Aron Elís Þrándarson, Adam Örn Arnarson og Daníel Leó Grétarsson voru allir í byrjunarliði Aalesund í leiknum. Daníel spilaði allan leikinn en þeir Aron og Adam fóru báðir af velli á 83. mínútu.

Aalesund komst með sigrinum upp um tvö sæti og í það áttunda þar sem liðið hefur 38 stig eftir 28 umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert