Dramatískur sigur Barcelona

Lionel Messi og Luis Suárez skoruðu mörk Börsunga í dag.
Lionel Messi og Luis Suárez skoruðu mörk Börsunga í dag. AFP

Lionel Messi skaut Spánarmeisturum Barcelona í toppsæti spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu eftir dramatískan 3:2 sigur gegn Valencia á útivelli.

Messi skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma en Luis Suárez var felldur innan vítateigsins.

Lionel Messi kom Börsungum yfir í fyrri hálfleik en heimamenn hófu síðari hálfleikinn með krafti og þeir skoruðu tvö mörk á fjögurra mínútna kafla. Suárez jafnaði metin á 62. mínútu og þegar allt stefndi í jafntefli fengu Börsungar vítaspyrnuna sem Messi skoraði úr.

Barcelona er með 19 stig í efsta sæti en Atlético Madrid og Real Madrid eru með 18 stig og eiga leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert