Flöskum kastað í Börsunga (myndskeið)

Suárez liggur í grasinu eftir að hafa flösku í höfuðið.
Suárez liggur í grasinu eftir að hafa flösku í höfuðið. AFP

Stuðningsmenn Valencia hentu flöskum í þá Neymar og Luis Suárez þegar leikmenn Barcelona fögnuðu sigurmarkinu í uppbótartíma í viðureign Valencia og Barcelona í dag.

Lionel Messi skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu og stuðningsmenn Valencia létu gremju sína bitna á leikmönnum Katalóníuliðsins og köstuðu í þá ýmsu lauslegu eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert