Iniesta meiddist illa

Andres Iniesta liggur hér á börunum.
Andres Iniesta liggur hér á börunum. AFP

Andres Iniesta fyrirliði Spánarmeistara Barcelona verður frá keppni í allt að tvo mánuði vegna meiðsla á hné sem hann varð fyrir í leik sinna manna gegn Valencia í gær.

Iniesta var borinn af velli eftir aðeins 14 mínútur og við skoðum lækna Barcelona mátu þeir stöðuna þannig að fyrirliðinn verður frá keppni næstu sex til átta vikurnar.

Iniesta gæti verið búinn að ná sér fyrir El Clásico en Barcelona og Real Madrid eigast við þann 3. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert