Líkur á að Kolbeinn missi af Króatíuleiknum

Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson. AFP

Ef marka má fréttir stuðningsmannasíðu tyrkneska liðsins Galatasaray eru þrjár vikur þar til Kolbeinn Sigþórsson getur snúið aftur inn á völlinn og séu þessar fréttir réttar er ljóst að sóknarmaðurinn sterki missir af leiknum á móti Króötum í undankeppni HM sem fram fer í Zagreb þann 12. nóvember.

Kolbeinn hefur glímt við meiðsli síðustu vikurnar og var fjarri góðu gamni í þremur fyrstu leikjum Íslendinga í undankeppninni, gegn Úkraínu, Finnlandi og Tyrklandi. Kolbeinn gekkst undir aðgerð á hné í september og hefur ekki náð að spila leik með Galatasaray, en hann gekk í raðir liðsins frá Nantes í ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert