Mun Kolbeinn kljást við Fábregas?

Cesc Fábregas.
Cesc Fábregas. AFP

Cesc Fábregas, miðjumaður Chelsea, er orðaður við tyrkneska félagið Fenerbahce í enskum fjölmiðlum í dag.

Fábregas hefur aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, en hann er að byrja þriðja tímabil sitt á Stamford Bridge. Þar áður lék hann með Arsenal og Barcelona.

Fenerbahce er stórveldi í Tyrklandi en liðið er nú í tíunda sæti og ellefu stigum frá toppnum. Ef Fábregas gengur til liðs við félagið er hann talinn verða einn launahæsti leikmaður deildarinnar. Hann mun þá kljást við Kolbein Sigþórsson, sem spilar með Galatasaray, erkifjendum Fenerbahce.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert