Victor og félagar áfram í botnsætinu

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. Ljósmynd/efb.dk

Guðlaugur Victor Pálsson og samherjar hans í Esbjerg sitja sem fastast í botnsæti dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Esbjerg tók á móti Midtjylland í kvöld og mátti sætta sig við 3:1 tap. Esbjerg er þar með áfram í botnsæti deildarinnar en liðið hefur 8 stig eftir 14 leiki. Victor lék allan leikinn á miðjunni hjá Esbjerg en hann hefur gegnt stöðu fyrirliða liðsins að undanförnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert