AC Milan steinlá og missti af toppsætinu

Frá viðureign AC Milan og Genoa í kvöld.
Frá viðureign AC Milan og Genoa í kvöld. AFP

AC Milan missti af tækifærinu til þess að tylla sér á topp ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

AC Milan, sem var ósigrað í sjö leikjum í röð, steinlá fyrir Genoa, 3:0. Nikola Ninkovic og Leonardo Pavoletti settu sitt markið hvor fyrir Genoa og Juraj Kucka varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Mílanóliðið lék manni færra síðustu 35 mínútur leiksins eftir að Gabriel Paletta fékk að líta rauða spjaldið.

AC Milan er með 19 stig í þriðja sæti og er tveimur stigum á eftir meisturum Juventus en Genoa er í 7. sætinu með 15 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert