Íslendingaliðið Rosenborg tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu þegar liðið lagði Bodö/Glimt, 2:0, í undanúrslitunum.
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan tímann í liði Rosenborgar, Matthías Vilhjálmsson kom inn á á 73. mínútu en Guðmundur Þórarinsson sat á bekknum.
Rosenborg, sem er fyrir löngu búið að tryggja sér Noregsmeistaratitilinn, mætir Strömsgodset eða Kongsvinger í úrslitaleiknum.