Rúnar tekinn við - kóngurinn kominn aftur

Rúnar Kristinsson sat fyrir svörum á fréttamannafundi eftir ráðninguna í …
Rúnar Kristinsson sat fyrir svörum á fréttamannafundi eftir ráðninguna í dag. Ljósmynd/Kristján Bernburg

Rúnar Kristinsson er formlega tekinn við sem þjálfari belgíska knattspyrnufélagsins Lokeren en hann var rétt í þessu kynntur til sögunnar á  fréttamannafundi í höfuðstöðvum félagsins.

Lokeren birti þetta á Twitter fyrir örfáum mínútum þar sem segir einfaldlega: Opinbert - Rúnar Kristinsson er nýi þjálfarinn okkar. Og önnur færsla var birt rétt á eftir með fyrirsögninni: King Runar is back! - með mynd af honum að fagna marki í búningi í Lokeren. Rúnar lék með liðinu í sjö ár og er einn af vinsælustu leikmönnunum í sögu þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert