„Cristiano, komdu út úr skápnum“

Cristiano Ronaldo í leiknum í gær.
Cristiano Ronaldo í leiknum í gær. AFP

Barcelona gæti átt von á sekt vegna framkomu ákveðins hóps stuðningsmanna í 1:1-jafnteflinu gegn Real Madrid í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. 

Stuðningsmennirnir kölluðu í áttina að Cristiano Ronaldo, leikmanni Real Madrid: „Cristiano, komdu út úr skápnum.“ Þetta var þó eingöngu lítill hópur stuðningsmanna heimaliðsins en aðrir stuðningsmenn reyndu að yfirgnæfa köllin með blístri.

Úrslitin þýða að Real Madrid er enn með sex stiga forskot á Barcelona í spænsku deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert