Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu lauk í kvöld með átta leikjum. Borussia Dortmund tók toppsætið í sínum riðli en Real Madrid hafnaði í öðru.
Í E-riðli var Monaco búið að vinna riðilinn en liðið tapaði í kvöld fyrir Leverkusen. Leiknum lauk með 3:0 sigri heimamanna. Tottenham vann á meðan CSKA Moskvu 3:1. Enska liðið lenti undir í leiknum en Dele Alli og Harry Kane sáu til þess að gulltryggja þriðja sætið.
Borussia Dortmund vann F-riðil með því að ná í 2:2 jafntefli gegn Real Madrid. Madrídingar komust yfir með tveimur mörkum frá Karim Benzema en Pierre-Emerick Aubameyang og Marco Reus sáu til þess að liðið myndi hirða toppsætið. Legia Varsjá vann 1:0 sigur á Sporting.
Leicester vann G-riðil þrátt fyrir 5:0 tap gegn Porto. FCK tekur svo Evrópudeildarsætið á meðan Porto fylgir Leicester áfram.
Juventus tók toppsætið í H-riðli eftir 2:0 sigur á Dinamo Zagreb. Sevilla og Lyon gerðu markalaust jafntefli og fer því Sevilla áfram með Juventus. Lyon fer í Evrópudeildina.
E-riðill:
Bayer Leverkusen 3:0 AS Monaco
Tottenham Hotspur 3:1 CSKA Moskva
Lokastaðan: Mónakó 11, Leverkusen 10, Tottenham 7, CSKA 3.
F-riðill:
Legia Varsjá 1:0 Sporting Lissabon
Real Madrid 2:2 Borussia Dortmund
Lokastaðan: Dortmund 14, Real Madrid 12, Legia 4, Sporting 3
G-riðill:
Club Brugge 0:2 FC Köbenhavn
Porto 5:0 Leicester City
Lokastaðan: Leicester 13, Porto 11, FC Köbenhavn 9, Club Brugge 0.
H-riðill:
Juventus 2:0 Dinamo Zagreb
Lyon 0:0 Sevilla
Lokastaðan: Juventus 14, Sevilla 11, Lyon 8, Dinamo Zagreb 0.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Leikjunum er lokið.
89. MARK!! Real Madrid 2:2 Borussia Dortmund. Marco Reus skorar og tryggir toppsætið í riðlinum.
78. MARK!! Tottenham Hotspur 3:1 CSKA Moskva. Igor Akinfeev setur boltann í eigið net og heimamenn komnir í tveggja marka forystu.
61. MARK!! Real Madrid 2:1 Borussia Dortmund. Pierre-Emerick Aubameyang að skora, hver annar??
53. MARK!! Real Madrid 2:0 Borussia Dortmund. Karim Benzema með sitt annað mark í kvöld. Frábærlega gert.
52. MARK!! Juventus 1:0 Dinamo Zagreb. Gonzalo Higuain skorar fyrir Juventus. Þeir að vinna riðilinn eins og staðan er núna.
Hálfleikur.
45. MARK!! Tottenham Hotspur 2:1 CSKA Moskva. Harry Kane kemur heimamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks. Gott mark hjá honum.
38. MARK!! Tottenham Hotspur 1:1 CSKA Moskva. Dele Alli jafnar fimm mínútum síðar.
30. MARK!! Legia Varsjá 1:0 Sporting. Guilherme að skora. Legia komið yfir!
33. MARK! Tottenham Hotspur 0:1 CSKA Moskva. Alan Dzagoev að koma Rússunum yfir á Englandi.
30. MARK!! Bayer Leverkusen 1:0 AS Monaco. Yurchenko skorar fyrir Leverkusen.
28. MARK!! Real Madrid 1:0 Borussia Dortmund. Karim Benzema skorar fyrir Real. Liðið er að vinna riðilinn sem stendur.
15. MARK!! Club Brugge 0:2 FCK. Jörgensen að koma FCK í tveggja marka forystu. Brugge átti aldrei möguleika í þessum riðli.
8. MARK!! Club Brugge 0:1 FCK. Brandon Mechele verður fyrir því óláni að skila boltanum í eigið net eftir aukaspyrnu.
6. MARK!! Porto 1:0 Leicester City. Andre Silva kemur heimamönnum yfir snemma leiks.
1. Leikirnir eru farnir af stað.
0. Helstu byrjunarlið birtast einnig hér fyrir neðan.
0. Lýsingin verður uppfærð jafnóðum.