Fyrrverandi knattspyrnuþjálfari hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi gegn barni og var handtekinn á þriðjudaginn.
Maðurinn heitir Jim McCafferty og starfaði um tíma hjá skoska stórliðinu Celtic á tíunda áratug síðustu aldar. Þar var hann upphaflega einn af njósnurum félagsins en fór síðar að þjálfa unglingalið félagsins.
McCafferty starfaði fyrir fleiri félög í Skotlandi eins og Falkirk og Hibs áður en hann fluttist til Norður-Írlands þar sem hann býr í dag.
Þar var hann handtekinn á þriðjudag og verður leiddur fyrir dómara í dag en ákæran mun tengjast broti í Norður-Írlandi en ekki Skotlandi samkvæmt breskum fjölmiðlum.