Real tapaði aftur – jafnoft nú og allt árið 2016

Cristiano Ronaldo þungur á brún í kvöld.
Cristiano Ronaldo þungur á brún í kvöld. AFP

Real Madrid tapaði fyrir Celta Vigo, 2:1, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Iago Aspas og Jonny Castro skoruðu mörk Celta Vigo, en Marcelo skoraði mark Real. Liðin mætast á ný í næstu viku.

Real Madrid var búið að vinna 40 leiki í röð þegar liðið tapaði fyrir Sevilla í spænsku 1. deildinni um helgina. Þetta er því annað tap liðsins í röð. Allt árið 2016 tapaði liðið aðeins tveimur leikjum í öllum keppnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert