Albert með þrennu

Albert Guðmundsson fagnar einu af mörkum sínum í kvöld.
Albert Guðmundsson fagnar einu af mörkum sínum í kvöld. Ljósmynd/twitter

Albert Guðmundsson er heldur betur á skotskónum með varaliði PSV þessa dagana. Albert skoraði þrennu í kvöld í 4:1 sigri PSV gegn Waalwijk í hollensku B-deildinni í knattspyrnu og hann hefur þar með skorað fimm mörk í vikunni en hann skoraði bæði mörk sinna manna gegn Breda.

Þetta er önnur þrenna Alberts í deildinni í vetur.

Albert hefur þar með skorað 9 mörk í 23 leikjum með PSV á leiktíðinni og með sigrinum í kvöld komst liðið upp í þriðja sæti deildarinnar. Liðið getur þó ekki unnið sig upp í efstu deild því þar leikur aðallið félagsins.

Albert, sem er 19 ára gamall, er samningsbundinn PSV í tvö tímabil til viðbótar og sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu að hann stefndi að því að komast í aðalliðshóp félagsins í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert