Frábær leikur Rúnars gegn stórliðinu

Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Rúnar Alex Rúnarsson átti frábæran leik í marki Nordsjælland sem náði stigi gegn meisturunum í FC København í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en lokatölur í þeim leik urðu 1:1.

Rúnar Alex kom sínum mönnum oft til bjargar í leiknum og bjargaði þeim á 78. mínútu leiksins er framherjinn stóri, Federico Santander, var kominn í dauðafæri, en Rúnar Alex brást hratt við og bjargaði.

Nordsjælland hefur 26 stig í 10. sæti dönsku deildarinnar. FC København hefur 55 stig í toppsætinu, níu stigum meira en erkifjendur liðsins í Brøndby.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert