Liðið mitt spilaði mjög vel

Arsene Wenger fylgist með leiknum í kvöld.
Arsene Wenger fylgist með leiknum í kvöld. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósaði liði sínu, þrátt fyrir 5:1 tap fyrir Bayern München í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 

Wenger var minna sáttur við dómara leiksins, þar sem honum fannst Theo Walcott eiga að fá víti í fyrri hálfleik ásamt því að hann var ósáttur við víti sem Bayern fékk í þeim síðari. 

„Það er mjög erfitt að útskýra hvað gerðist. Mér fannst við spila vel en við vorum óheppnir með ákvarðanir dómarans. Það er erfitt að skilja hvað gerðist.“

„Við hefðum átt að fá víti þegar það var brotið á Walcott. Lewandowski var rangstæður þegar hann fékk víti og þetta var mjög erfitt eftir rauða spjaldið. Liðið mitt lagði mikið á sig í kvöld og spilaði mjög vel,“ sagði Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert