Skelfilegt fótbrot hjá Coleman (mynd)

Coleman er borinn af velli í gær.
Coleman er borinn af velli í gær. AFP

Írski knattspyrnumaðurinn Seamus Coleman meiddist afar illa í markalausa jafntefli Írlands og Wales í gær, í undankeppni HM, sem fram fer í Rússlandi á næsta ári. Neil Taylor tæklaði Coleman groddaralega með þeim afleiðingum að Coleman fótbrotnaði.

Coleman verður frá í ansi langan tíma, sem er mikil blóðtaka fyrir Íra, þar sem hann er landsliðsfyrirliði. Hann er einnig fastamaður í hægri bakvarðastöðinni hjá enska félaginu Everton. 

Hér að neðan má sjá mynd af fótbroti Coleman, sem er vægast sagt skelfilegt. 

Löppin á Coleman fór í rúst.
Löppin á Coleman fór í rúst. Ljósmynd/Youtube skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert