„Þetta er pirrandi því við vorum með stjórn á leiknum en við vorum ekki nægilega einbeittir, við verðum að klára svona leiki. Þeir fengu eitt færi og það dugði til að skora," sagði Michael Carrick, leikmaður Manchester United eftir 1:1 jafntefli við Anderlecht í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.
Henrikh Mkhitaryan kom Manchester United yfir í fyrri hálfleik áður en Leander Dendoncker jafnaði í þeim síðari.
„Þetta er enginn heimsendir en við eigum að vera betri en þetta. Okkur hlakkar til að takast á við þá á heimavelli," bætti hann við.