Real Madrid spænskur meistari 2017

Leikmenn Real Madrid höfðu ástæðu til að fagna í kvöld.
Leikmenn Real Madrid höfðu ástæðu til að fagna í kvöld. AFP

Real Madrid er spænskur meistari í knattspyrnu eftir 2:0 útisigur á Malaga í dag. Cristiano Ronaldo og Karim Benzema skoruðu mörkin sem tryggðu sigurinn. Barcelona varð að sætta sig við 2. sætið, þrátt fyrir 4:2 sigur á Eibar. 

Þetta er fyrsti titill Real í deildinni síðan árið 2012 en Barcelona hefur unnið titilinn þrisvar á síðustu fjórum árum. Real getur svo fullkomnað gott tímabil er það mætir Juventus í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í næsta mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert