Sampaoli tekur við Messi og félögum

Sampaoli sem þjálfari Síle að fylgjast með Lionel Messi í …
Sampaoli sem þjálfari Síle að fylgjast með Lionel Messi í leik gegn Argentínu. Nú er ljóst að Messi leikur undir stjórn Sampaoli. AFP

Jorge Sampaoli var í dag staðfestur sem næsti þjálfari argentínska landsliðsins í knattspyrnu og tekur hann við af Edgardo Bauza sem var rekinn fyrr á þessu ári. 

Sampaoli hættir með Sevilla, sem hann stýrði til 4. sætis í spænsku A-deildinni á leiktíðinni. Þar áður var hann með landslið Síle og Club Universidad de Chile, sem leikur í deildinni þar í landi. 

Sampaoli er Argentínumaður sem hefur mikla reynslu af þjálfun, en hann neyddist til að hætta knattspyrnuiðkun er hann var aðeins 19 ára gamall vegna meiðsla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert