Mascherano fer í aðgerð

Javier Mascherano er hér borinn af velli eftir að hafa …
Javier Mascherano er hér borinn af velli eftir að hafa meiðst á hné. AFP

Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano í liði Barcelona þarf að gangast undir aðgerð vegna meiðsla á hné sem hann varð fyrir í bikarúrslitaleiknum gegn Alaves um nýliðna helgi.

Mascherano verður frá æfingum og keppni næstu sex vikurnar í það minnsta sem þýðir að hann verður ekki með argentínska landsliðinu í leikjunum á móti Brasilíu og Singapúr í næsta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert