Nýr þjálfari kynntur til leiks hjá Barcelona

Luis Enrique lyftir bikarnum á loft en hann er hættur …
Luis Enrique lyftir bikarnum á loft en hann er hættur sem þjálfari Barcelona. AFP

Barcelona mun í kvöld tilkynna hver verður næsti þjálfari liðsins en Luis Enrique stýrði Katalóníuliðinu í síðasta sinn á laugardagskvöldið þegar Barcelona lagði Alaves í úrslitaleik spænsku konungsbikarkeppninnar.

Nær öruggt er talið að Ernestio Valverde taki við þjálfun Barcelona en hann hætti sem þjálfari Athletic Bilbao í síðustu viku eftir að hafa verið við stjórnvölinn frá árinu 2013.

Barcelona hefur boðað til fréttamannafundar í kvöld þar sem nýr þjálfari verður kynntur til sögunnar en tímabilið reyndist Katalóníuliðinu vonbrigði. Liðið endaði í öðru sæti á eftir erkifjendunum í Real Madrid í deildinni, var slegið út af Juventus í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en vann spænsku konungsbikarkeppnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert