Bikarþrenna frá Matthíasi

Matthías Vilhjálmsson skorar í leik með Rosenborg.
Matthías Vilhjálmsson skorar í leik með Rosenborg. Ljósmynd/rbk.no

Matthías Vilhjálmsson skoraði þrennu fyrir Noregsmeistara Rosenborg í kvöld þegar þeir sigruðu Levanger á útivelli, 4:2, í 3. umferð norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Matthías lék allan leikinn með Rosenborg og kom liðinu í 2:0 undir lok fyrri hálfleiks, og eftir að Levanger minnkaði muninn gerði hann tvö mörk með þriggja mínútna millibili um miðjan síðari hálfleikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert