Franski sóknarmaðurinn Antoine Griezmann er ekki á leið til Manchester United ef marka má fréttir Sky Sports í dag. Griezmann getur spilað sem framherji, á miðjunni og á kantinum, en United ætlar að næla sér í hreinan framherja fyrir næstu leiktíð.
Griezmann er með samning til 2021 og er klásúla í samningnum sem gerir félögum kleift að kaupa hann á 87 milljónir punda, en nú er ljóst að Manchester United mun ekki nýta sér það.