Ronaldo saknar þess að vera á Englandi

Cristiano Ronaldo saknar þess að vera á Englandi.
Cristiano Ronaldo saknar þess að vera á Englandi. AFP

Cristiano Ronaldo viðurkennir að hann sakni Manchester United og að hann sé orðinn þreyttur á að stuðningsmenn Real Madrid púi á sig. Hluti af stuðningsmönnum Real púar á Ronaldo, þrátt fyrir að hann hafi skorað 285 mörk í 241 leik síðan hann kom til félagsins frá Manchester United árið 2009. 

Hann viðurkennir að hann er hrifnari af stuðningsmönnum United, þó hann sé ánægður hjá Real. 

„Ég var lengi hjá Manchester United og stuðningsmennirnir púuðu aldrei á mig, ekki einu sinni. Kannski er hefðin önnur á Spáni. Ég er ánægður á Spáni en ég sakna þess líka að vera á Englandi."

„Ég geri alltaf mitt besta en ég má ekki gera ein mistök, þá er fólk farið að púa og blístra og ég er ekki hrifinn af því," sagði Ronaldo. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert