Aron skoraði og lagði upp

Aron Sigurðarson.
Aron Sigurðarson. AFP

Aron Sigurðarson skoraði eitt mark fyrir Trömso og lagði upp annað í 4:2 tapi liðsins gegn Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Aron var allt í öllu í mörkum Tromsö. Hann minnkaði muninn fyrir liðið í 4:1 á 63. mínútu og lagði upp síðara mark liðsins 12 mínútum síðar.

Samú­el Kári Friðjóns­son var ekki í leikmannahópi Vålerenga í dag.

Tromsö hefur 13 stig í 11. sæti eftir 12 leiki. Vålerenga hefur 17 stig í 8. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert