AC Milan að næla í Belotti

Andrea Belotti í leik með Torino.
Andrea Belotti í leik með Torino. AFP

AC Milan hefur boðið um 39 milljónir punda í ítalska framherjann Andrea Belotti en hann er samningsbundinn Torino. Leikmaðurinn hefur verið orðaður við Manchester United á undanförnum vikum, en ljóst er að fleiri félög hafa áhuga. 

Talið er að Torino vilji um 56 milljónir punda fyrir leikmanninn, en félagið hefur þó ekki enn hafnað tilboðinu. Belotti kom til Torino frá Palermo fyrir 6,5 milljónir punda í ágúst 2015 og hefur hann skotist upp á sjónarsviðið á skömmum tíma. 

Hann skoraði 28 mörk fyrir Torino á leiktíðinni. Þá hefur hann skorað þrjú mörk fyrir ítalska landsliðið í undankeppni HM 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert