Borini að ganga í raðir AC Milan

Fabio Borini í leik með Sunderland.
Fabio Borini í leik með Sunderland. AFP

Fabio Borini, leikmaður enska knattspyrnufélagsins Sunderland, er á leið í læknisskoðun hjá AC Milan, eftir að félögin komust að samkomulagi um kaupverð upp á 5,3 milljónir punda.

Milan og Roma reyndu að fá hinn 26 ára Borini í janúar, en Sunderland hafnaði tilboðum þeirra. Eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð hefur félagið hins vegar ákveðið að selja Ítalann. 

Borini spilaði 24 leiki fyrir Sunderland á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert