Birkir Már Sævarsson lagði upp fyrsta mark Hammarby sem hafði betur gegn Örebro, 3:1, í sænsku A-deildinni í knattspyrnu í dag. Birkir skallaði aukaspyrnu fyrir fætur Fredrik Torsteinbo sem skoraði af stuttu færi. Arnór Smárason og Ögmundur Kristinsson léku allan leikinn fyrir Hammarby, eins og Birkir. Hjörtur Logi Valgarðsson kom inn á sem varamaður á 69. mínútu hjá Örebro.
Hammarby er í sjöunda sæti deildarinnar með 21 stig og Örebro í tíunda sæti með 18 stig.