Vilja fá Martial fyrir í stað Perisic

Anthony Martial gæti farið til Ítalíu.
Anthony Martial gæti farið til Ítalíu. AFP

Forráðamenn ítalska knattspyrnufélagsins Inter vilja fá Anthony Martial frá Manchester United í stað Ivan Perisic sem er að öllum líkindum að ganga í raðir enska félagsins. United hefur boðið oftar en einu sinni í Perisic, en Inter hefur hafnað tilboðum félagsins til þessa. 

Nú hefur Inter lagt fram móttilboð þar sem félagið biður um að fá Martial í stað króatíska miðjumannsins. Martial var ekki með fast sæti í byrjunarliði Manchester United í síðasta tímabili. Hann skoraði átta mörk á leiktíðinni og byrjaði 18 sinnum í deildinni. 

Sky Sports greindi frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert