Nánast öruggt að Neymar fari til PSG

Neymar á æfingu með Barcelona.
Neymar á æfingu með Barcelona. AFP

Skysports telur sig hafa öruggar heimildir fyrir því að brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar muni yfirgefa herbúðir Barcelona á næstu dögum og ganga til liðs við PSG. Neymar mun verða langdýrasti leikmaður heims verði af félagaskiptunum, en PSG þarf að punga út rúmum 200 milljónum punda fyrir brasilíska framherjann.

„Það er aðeins kraftaverk sem mun koma í veg fyrir að Neymar fari frá Barcelona. Neymar hefur ákveðið að fara, en hann telur sig geta bætt sig enn frekar hjá nýju félagi. Það eru um það bil 90% líkur á að hann fari frá Barcelona til PSG,“ sagði heimildarmaður Skysports.

Talið er að PSG sé eina félagið sem sé reiðubúið að greiða þá upphæð sem þarf að greiða til þess að klófesta Neymar, en klásúla í samningi brasilíska markaskorarans kveður á um að Barcelona verði að samþykkja tilboð í hann sem er 222 milljónir evra eða hærra.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert