„Við erum nálægt því að fá Gylfa“

Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson mbl.is/Golli

Ronald Koeman, þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Everton segir félagið vera nærri því að kaupa Gylfa Þór Sigurðsson, miðjumann Swansea. 

Koeman var spurður út í Gylfa eftir 2:2 jafntefli liðsins gegn Sevilla í vináttuleik í dag og þykir það ekki ólíklegt að Gylfi verði orðinn leikmaður Everton á allra næstu dögum. 

„Það vita allir að við erum að leita að þremur leikmönnum í viðbót. Við erum nálægt því að fá Gylfa, en það er ekki neitt frágengið enn þá," sagði Koeman. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert