Coutinho opinn fyrir Barcelona

Philippe Coutinho í leik með Liverpool.
Philippe Coutinho í leik með Liverpool. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Philippe Coutinho er opinn fyrir því að yfirgefa Liverpool og ganga í raðir Barcelona ef marka má heimildir Sky Sports.

Coutinho ætlar ekki að biðja um sölu frá Liverpool og mun hann aðeins yfirgefa félagið ef Liverpool ákveður að selja hann, eitthvað sem félagið hefur haft lítinn áhuga á hingað til. 

Miðjumaðurinn skrifaði undir fimm ára samning við Liverpool í janúar á þessu ári og Liverpool hafnaði 72 milljóna punda tilboði Barcelona umsvifalaust í síðasta mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert