Magnað mark hjá Bendtner (myndskeið)

Nicklas Bendtnerer er frægastur fyrir tíma sinn hjá Arsenal.
Nicklas Bendtnerer er frægastur fyrir tíma sinn hjá Arsenal. AFP

Danski framherjinn Nicklas Bendtner hefur oft verið á milli tannanna á fólki fyrir framgöngu sína utan vallar, en fáir efast um hæfileika kappans innan vallar. Hann undirstrikaði það fyrir norska meistaraliðið Rosenborg um helgina.

Matthías Vilhjálmsson og félagar mættu þá Molde og lentu 1:0-undir áður en Bendtner jafnaði metin með afar laglegu marki. Hann skaut þá utanfótarskoti utarlega í teignum og skilaði boltanum upp í markvinkilinn, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Matthías lagði svo upp sigurmark Rosenborgar í leiknum sem er með 41 stig á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert