Sarpsborg á eftir Guðmundi

Guðmundur Þórarinsson
Guðmundur Þórarinsson Ljósmynd/Norrköping

Norska knattspyrnufélagið Sarpsborg hefur áhuga á að fá Guðmund Þórarinsson, leikmann Norrköping í sínar raðir ef marka má heimildir Sarpsborg Arbeidblad. Guðmundur spilaði með Sarpsborg frá 2013-2014 og þekkir vel til félagsins.

Guðmundur hefur verið inn og út úr byrjunarliði Norrköping á leiktíðinni, en félagsskiptaglugginn í Noregi lokar á morgun. Hann hefur leikið 17 leiki á tímabilinu og þar af sex sem byrjunarliðsmaður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert