Bayern fór mjög vel af stað

Corentin Tolisso fagnar marki sínu í kvöld.
Corentin Tolisso fagnar marki sínu í kvöld. AFP

Bayern München fór vel af stað í titilvörn sinni í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld er liðið vann 3:1-sigur á Bayer Leverkusen á heimavelli sínum í fyrsta leik tímabilsins. 

Niklas Süle og Corentin Tolisso komu Bayern í 2:0 eftir aðeins 19 mínútur en þeir komu báðir til félagsins í sumar. Robert Lewandowski kom Bayern í 3:0 á 53. mínútu með marki úr vítaspyrnu áður en Admir Mehmedi minnkaði muninn í 3:1 á 65. mínútu og þar við sat. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert